Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Haukar.is

Haukar fengu viðurkenningar á lokahófi HSÍ

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukar voru sigursælir á lokahófi HSÍ sem fram fór um síðast liðna helgi. Aron Kristjánsson, þjálfari liðsins var valinn þjálfari ársins. Aron Rafn Eðvarðsson var valin markvörður ársins og Matthías Árni Ingimarsson var kosinn varnarmaður ársins. Þá var Gylfi Gylfason í liði ársins í N1-deildinni.

Óskum við þeim til hamingju með viðurkenningarnar! 

 

Næstu leikir í fótboltanum

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Fyrir Hauka-fólk sem er á faraldsfæti næstu daga þá á meistaraflokkur karla í fótboltanum krefjandi útileiki næstu daga.  Í kvöld spilar liðið í Stykkishólmi gegn Snæfelli í Bikarkeppni KSÍ en lið Snæfells leikur í 3.deild karla og hefst leikurinn kl. 20:00.  

Á laugardaginn kl. 14:00 mætum við svo Hetti og fer leikurinn fram á Fellavellinum á Egilsstöðum. Sá leikur er í 2.umferð 1.deildar karla en bæði lið unnu leiki sína í fyrstu umferð.

Stelpurnar hefja svo leik hér á höfuðborgarsvæðinu kl.19:15 á föstudag þegar þær mæta ÍR í Breiðholtinu. 

Við minnum einnig á að þá sem hafa áhuga, á að staðan í öllum leikjum Hauka sem og aðra félaga er uppfærð á úrslitaþjónustusíðunni, Urslit.net um leið og mörk eru skoruð í leikjum.

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 16 Maí 2012 18:02 ) Lesa meira...
 

Sigurbergur Sveinsson kominn heim í Hauka

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sigurbergur Sveinsson er kominn heim!Í gær skrifaði Sigurbergur Sveinsson, landsliðsmaður í handknattleik undir tveggja ára samning við Hauka.
Sigurbergur er okkur hjá Haukum að góðu kunnur enda uppalinn hjá félaginu.

 

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 15 Maí 2012 11:15 ) Lesa meira...
 

Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukar hafa lokið við að semja við alla leikmenn sína fyrir komandi keppnistímabil. En þeir Emil Barja, Haukur Óskarsson og Guðmundur Kári Sævarsson skrifuðu undir samninga við Hauka í dag um að leika með Haukum næstu 2 árin.

Nú liggur fyrir að Haukar munu tefla fram í 1.deild á komandi keppnistímabili þeim leikmönnum sem enduðu síðast liðið keppnistímabil með Haukum. Pétur Rúðrik Guðmundsson verður áfram þjálfari liðsins þar sem markmið Hauka er skýrt fyrir komandi keppnistímabil að endurheimta sæti í efstu deild að nýju.

Sævar Ingi Haraldsson og Óskar Ingi Magnússon hafa lagt skóna á hilluna og munu ekki spila með Haukum næsta vetur en að öðru leiti mun liðið verða með óbreyttan leikmannahóp.  

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 16 Maí 2012 08:35 )
 


Síða 1 af 353
Borði


Molar

Í sögu Hafnarfjarðar, sem Sigurður Skúlason, magister skrifaði, og kom út árið 1932, er minnst á öll þau íþróttafélög sem höfðu starfað og voru starfandi í bænum á þeim tíma.  Þar á meðal eru Haukar nefndir til sögunnar sem yngsta íþróttafélagið í bænum.  Fimleikafélag Hafnarfjarðar er ekki nefnt á nafn í þessari samantekt sem vekur upp spurningar hvort Haukar séu ekki í raun réttri elsta starfandi íþróttafélag í Hafnarfirði. 

samstarfsadilar

Borði