Efnisveitunni er ætlað vera safn minninga úr starfi Hauka.
Þeir sem eiga undir höndum úrklippur, myndir, myndskeið (video) eða tónlist sem tengjast starfi Hauka þá væri mjög vel þegið ef því væri komið á framfæri við ritstjórn heimasíðu Hauka.
Í sögu Hafnarfjarðar, sem Sigurður Skúlason, magister skrifaði, og kom út árið 1932, er minnst á öll þau íþróttafélög sem höfðu starfað og voru starfandi í bænum á þeim tíma. Þar á meðal eru Haukar nefndir til sögunnar sem yngsta íþróttafélagið í bænum. Fimleikafélag Hafnarfjarðar er ekki nefnt á nafn í þessari samantekt sem vekur upp spurningar hvort Haukar séu ekki í raun réttri elsta starfandi íþróttafélag í Hafnarfirði. |