Leik Hauka og FH í N1-deild karla var að ljúka rétt í þessu með 26-20 sigri gestana úr FH. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og var staðan 10-10 í hálfleik. Framan af síðari hálfleik virtist það sama ætla að verða upp á teningnum en í stöðunni 15-15 þegar um 20 mín voru eftir hrökk allt í baklás hjá okkar mönnum og FH-ingar skoruðu fimm mörk í röð. Strákarnir náðu aldrei að brúa það bil það sem eftir lifði leiks og þegar uppi var staðið vann FH sannfærandi sigur 26-20.
Markahæstir hjá Haukum voru þeir Tjörvi Þorgeirsson með 7 mörk og Gylfi Gylfason með fjögur. Birkir Ívar Guðmundsson varði 12 skot í markinu og Aron Rafn Eðvarðsson varði 6.




































