Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Upplýsingar um það sem er á döfinni

Lokað 1.maí

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÍþróttahús Ásvalla er lokað á morgun 1.maí.

 
aobjecta

Hummel söludagar Hauka - ný dagsetning

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Söludagar Hummel verða haldnir 16.-18. apríl næstkomandi (sjá breytta dagsetningu).
Opið verður frá kl. 17:00-19:00 alla dagana.

Hægt verður að kaupa fótboltabúning, peysur, sokka, buxur, töskur, fótbolta, æfingasett og vindjakka.

Allur ágóðinn af sölunni mun renna til Hauka.

 

 

Söludagar Hummel

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarSöludagar Hummel verða haldnir 10.-12. apríl næstkomandi hér á Ásvöllum.
Opið verður frá kl. 17:00-19:00 alla dagana.

Hægt verður að kaupa fótboltabúning, peysur, sokka, buxur, töskur, fótbolta, æfingasett og vindjakka.

Sent verður á foreldra í næstu viku það sem er í boði og verð.

Allur ágóðinn af sölunni mun renna til Hauka.

Síðast uppfært ( Föstudagur, 30 Mars 2012 23:03 )
 

Ábending Rannsóknarnefndar umferðaslysa

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur borist skýrsla Rannsóknarnefndar umferðaslysa vegna banaslyss sem varð á Eyjafjarðarbraut 20. janúar 2011.

Í skýrslunni kemur fram ábending til þeirra sem stunda útihlaup um að skoða öryggismál sín. Lögð er áhersla á að viðkomandi klæðist endurskinsvesti eða jakka. Þá bendir nefndin á að ljósgeisli aðalljósa bifreiða og bifhjóla lýsir niður á veginn. Af þeim sökum er ráðlegt að vera með endurskin í ökklahæð eða neðst á kálfa því að sú staðsetning kemur fyrr inn í ljósgeisla aðalljósa bifreiða en endurskin á efri hluta líkamans.

Hlauparar sem skokka á þjóðvegum ættu einnig að skoða hvort mögulegt sé að hlaupa utan þjóðvegar, sérstaklega í rökkri og myrkri.

ÍSÍ leggur áherslu á að ofangreindri ábendingu verði komið á framfæri við alla þá sem þið teljið að hún eigi erindi við. Mikilvægt er að huga ætíð vel að öryggismálum íþróttaiðkenda og vera sífellt vakandi fyrir aðstæðum sem geta skapað hættu.

 

 

Umsóknarfrestur vinnuskólans í sumar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarUmsóknarfrestur til að sækja um í vinnuskólanum í sumar er til 4. apríl fyrir þau sem eru 17 ára og eldri þ.e. fædd 1995 eða fyrr. Eftir það verður ekki tekið við umsóknum.

Þeir sem eru yngri eða í 8. - 10. bekk geta sótt um vinnu í gegnum skólann sinn en umsóknir þess efnis verða komnar í skólana eftir páska. 

Ef áhugi er fyrir hendi að vinna í Íþróttaskóla Hauka í sumar þarf að óska eftir því sérstaklega á umsókninni. Við getum ekki lofað vinnu en við munum skoða allar umsóknir. Við fáum ákveðin mörg stöðugildi og þurfum því að velja inn - þau sem hafa verið hjá okkur áður og staðið sig vel eiga góða möguleika.

 

Kynningarfundur Afrekssviðs Hauka og Flensborgarskóla

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarMánudaginn 12. mars verður kynning á Ásvöllum á Afrekssviði Hauka og Flensborgarskóla kl. 21:15.

Kynningin mun taka um 30 mínútur og er sérstaklega hugsuð fyrir iðkendur, stráka og stelpur, Hauka fædda 1996 og forráðamenn þeirra.

Aðrir áhugasamir um afreksstarf Hauka eru að sjálfsögðu velkomnir á fundinn. 

 

Endurgreiðslur niðurgreiðslna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarKæru foreldrar

Verið er að vinna í endurgreiðslunum til ykkar.

Reynt verður að klára þær í dag eða á morgun.

Takk fyrir þolinmæðina.

 

Spilakvöldi frestað

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarSpilakvöldi frestað.

Spilakvöldi Öldungaráðs sem vera átti í kvöld er frestað vegna ófærðar og slæmrar veðurspár.

 

Fyrirlestrar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Í næstu viku ætlum við að bjóða upp á tvennskonar fyrirlestra fyrir ykkur foreldra, iðkendur og áhugafólk hér á Ásvöllum.

Þetta er okkar leið til að fræða alla um mikilvæga þætti íþróttastarfsins og lifnaðahætti. Fyrirlesari er Kristján Ómar Björnsson en hann er starfandi hér sem styrktarþjálfari, hefur séð um afreksskólann og afreksbraut Hauka og Flensborgarskóla. Hann þjálfar 8. flokk barna í knattspyrnu og er einnig leikmaður með meistaraflokki í knattspyrnu. 

Eftirtaldir fyrirlestrar verða í boði:

Mánudaginn 23.jan. kl. 19:30 (fyrirlestrarherbergi)

Betri matarvenjur = Betri í íþróttum og betri einkunnir! 

Vilt þú verða betri í íþróttinni þinni og ná betri einkunnum í skólanum með því einu að borða rétt?

Fimmtudaginn 26.jan. kl. 21:00 (fyrirlestrarherbergi)

Fæðubótarefni, bætiefni og önnur lyf

Eitthvað fyrir íþróttamanninn?

Mikilvægt er að skrá sig á fyrirlestrana því takmörkuð sæti eru í boði.

Smellið hér til að ná í skráningarformið 

Stöndum saman í að efla fræðslu okkar og íþróttamannanna okkar.

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 18 Janúar 2012 09:14 )
 

Niðurgreiðslur Hafnarfjarðarbæjar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarVarðandi endurgreiðslur á niðurgreiðslum þá erum við ekki byrjuð að endurgreiða.

Ástæðan er sú að við höfum einungis fengið hluta af niðurgreiðslunum greitt frá Hafnarfjarðarbæ. Um leið og öll greiðsla hefur borist þá munum við endurgreiða.

Við getum því miður ekki sagt til um hvenær það verður.

Þeir sem greiddu með kreditkorti munu fá innlagt á þau og innlagt verður á reikning þeirra sem greiddu með greiðsluseðlum.

Takk fyrir þolinmæðina.

 

Leikjaskóli barnanna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarLeikjaskóli barnanna hefst laugardaginn 14.jan.

Það er sama tímasetning og ávallt, 2-3 ára kl. 09:30 og 4-5 ára kl. 10:15.

Það eru allir velkomnir líka þeir sem ekki voru á haustönn.

 


Síða 1 af 7
Borði


Molar

Haukastúlkur urðu Íslandsmeistarar í handbolta í fyrsta sinn árið 1945.  Í meistaraliðinu voru þær Svava Júlíusdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Soffía Júlíusdóttir, Guðný Guðbergsdóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir og Kristín Þorvarðardóttir. (heimild Haukar 60. ára, bls. 50)

samstarfsadilar

Borði